Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Nú jæja, úr því að Blair segir það...

Getur hugsast að Tony Blair eigi eftir að segja seinna, þegar búið er að ráðast á Íran "Ég sagði aldrei að það væri 100% öruggt að ekki yrði ráðist á Íran, ég taldi það ósennilegt... en aðstæður breyttust og ekki var hægt að komast hjá því að beita hervaldi."?

Ég þori að minnsta kosti að veðja hest mínum og hnakki upp á það.


mbl.is Blair segir Bandaríkjastjórn ekki hvetja Ísraela til árása á Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hjá þeim!

Um að gera að láta þessa stríðsóðu Ísraela vita að þetta þýðir ekki lengur, þeir verða að lúta einhverjum alþjóðalögum þó þeir hafi komist upp með að sleppa því hingað til!


mbl.is Líbanski herinn skaut að ísraelskum flugvélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlifandi It?

Getur verið að þessi gaur sé einn af þeim sem lifði af ofsóknir It-trúðsins hér í denn og hafi þess vegna óbeit a trúðum? Ég skil hann vel...
mbl.is Tveir sirkustrúðar skotnir til bana í Kólumbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

(á innsoginu) Guð, ég hef svo miklar áhyggjur af Britney!

Vona að Justin geti talað við hana og komið vitinu fyrir henni áður en hún fer sér á voða!!

 

 

djók.


mbl.is Timberlake kallaður Britney til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartsýnir Ítalir!

Að halda að þeir geti dæmt bandaríska leyniþjónustumenn fyrir glæpi sína, þvílík bjartsýni!! Það vita það allir heilvita menn að kaninn er yfir alþjóðalög hafinn, sérstaklega ef það snýr að mannréttindum.

Ágætis grín hjá þeim samt sem áður.


mbl.is Ítalskur dómari fyrirskipar að réttað verði yfir CIA-starfsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er aldrei farið yfir texta á mbl.is??

Fréttin um Frank fjölskylduna er bara eitt dæmi um fjöldan allan af dæmum þar sem illa gerðar fréttir fá að liggja inn á vef mbl.is eins og ekkert sé.

 Það gæti reyndar verið að Otto Frank, faðir Önnu hafi verið drukkinn þegar hann skrifaði bréf til vinar síns og vegna þess er brot úr bréfinu sem í fréttinni er óskiljanlegt, hér er brotið: „Ég myndi ekki biðja neyddu aðstæður hér mig ekki til að gera allt sem í mínu valdi stendur til að reynda að forðast það sem er enn verra,” Vitið þið hvað þetta þýðir? Endilega deilið því með mér.

 

ps. Ef Styrmir Gunnarsson les þetta þá væri ég alveg til í að lesa yfir fréttir fyrir ágæta fúlgu.


mbl.is Vegabréfsáritun Frank fjölskyldunnar var dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirbúningur Íransstríðs?

Getur verið að bandaríkjamenn og bretar séu nú byrjaðir á því að undirbúa stríð gegn Íran? Man einhver eftir aðdraganda Írakstríðsins þar sem bandaríkjamenn og bretar héldu því fram "vegna ónákvæmra upplýsinga frá CIA" að Saddam ætti gereyðingarvopn? Nú segja þeir að Íranir séu að framleiða kjarnorkuvopn og nú það nýjasta, sjá uppreisnarmönnum í Írak fyrir vopnum og segjast vera með sannanir... þið verðið að fyrirgefa en ég treysti á engan hátt "sönnunum" frá þessum stríðsglæpamönnum.
mbl.is Tony Blair tekur undir ásakanir um vopnasmygl Írana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband