Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Oh, þessir víkingar!

Þetta er frekar skondið... og minnir mig á amerískan hálfvita sem mágkona mína, hún Lourdes, kona Styrmis bróður hitti. Hún var þá að vinna í Köben, en þau búa í Malmö. Einn viðskiptavinur hennar, kani, snýr sér að henni og segir þessa gullnu setningu: Do you (scandinavia) have the same problems with the vikings as we have with the black people in USA?

 Við þessu átti Lourdes ekki svar, hún varð orðlaus... og eins gott að þessi heimski rasisti vissi ekki að hún væri Mexikani...

 En, samkvæmt þessari frétt hafði þessi vitleysingur rétt fyrir sér að einhverju leiti... LoL 


mbl.is Hrópuðu bankarán og fengu tiltal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ef þetta væru Íslendingar?

Ég gæti haft rangt fyrir mér... en mig grunar að ef þessir verkamenn (sem eru kínverjar, portúgalar og fl.) væru íslendingar, þá væri rannsókn um þetta mál komið í gang fyrir löngu og allt væri á suðurpunkti í þjóðfélaginu, menn krafðir svara og ákærur á lofti... en þetta er útlendingar og þá er þetta látið hjaðna smá saman... óþarfi að æsa sig... en eins og ég sagði í byrjun, þá gæti ég haft rangt fyrir mér.
mbl.is VG krefst opinberrar rannsóknar á aðbúnaði verkamanna við Kárahnjúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með því fyndnara sem ég hef séð lengi! :)

Var að spá í að senda Gunnari í krossinum þetta skemmtilega myndband... en hann bíður víst syndinni ekki í kaffi...

Hjúkk!

Eins gott að morgunblaðsmenn þýddu ekki Bergen í þetta skiptið... hefði getað komið sér illa fyrir okkur sem heita þessu nafni...

 Óútskýrð ólykt í Björgvin

 Hefði verið hræðileg fyrirsögn... hehe.


mbl.is Óútskýrð ólykt í Bergen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleiðing Malaríu?

Ég held að Bush sé ekki rétti maðurinn til að vekja athygli á afleiðingum Malaríu... fólk gæti haldið að einkenni Malaríu væri heimska, hroki og stríðsæsingur...
mbl.is Bush sýndi afrískan dans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrt viðhald!

Margir láta sér nægja að bjóða viðhaldinu sínu í mat eða í bíltúr... en nei, þau eru dýrari viðhöldin í New York! Grin
mbl.is Jón Ásgeir keypti sér íbúð í New York fyrir 10 milljónir dollara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Here we go again...

Jæja... þá heldur áróðurinn áfram, nákvæmlega það sama og gert var fyrir Íraksstríðið, alls konar fréttir um meint gereyðingarvopnaeign Saddams, tengsl hans við Al Kaída og ég veit ekki hvað og hvað... nú er þetta byrjað gegn Írönum, þeir smygla vopnum til Íraks, hjálpa Al Kaída liðum, tengjast vondu köllunum í Síberíu, vilja búa til kjarnorkuvopn og nú þetta. Fæ í magan af svona... Sick
mbl.is Al-Qaeda í Írak sagt vera að undirbúa umfangsmiklar árásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá... loksins þolinmæðin á þrotum!

Ég hélt að Vesturlöndin væru að bíða eftir því að jafnmargir yrðu drepnir í Darfur héraði og í Rúanda forðum þegar Vesturlöndin lokuðu líka augunum fyrir hryllingnum þar. Þá væri kannski líka hægt að gera þessa fínu kvikmynd! Hotel Sudan: the Darfur Massacre svo við getum grátið við að horfa á hana og bíða svo eftir næstu mynd...


mbl.is Blair segir þolinmæði alþjóðasamfélagsins gegn Súdan á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver treystir þessum hálfvitum?

Reyndar veit ég svarið... Sjálfstæðismenn treysta þessum hálfvitum og þá er ég að tala um bandaríkjamenn.

Þegar þeir svo "loksins" ráðast á Íran þá segja þeir að þessi nýlega stækkaði floti hefði komið sér vel en að þetta hafi allt verið tilviljun...

 

ætlað til að tryggja frið á svæðinu... whatever.


mbl.is Engin áform um að ráðast á Íran segir yfirmaður bandaríska flotans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissu þeir líka að bandarísk stjórnvöld voru með í plottinu?

Kíkið á heimildarmyndir á borð við Terrorstorm og Loose Change!

 9/11 WAS an inside job.


mbl.is Vissi franska leyniþjónustan af yfirvofandi hryðjuverkum 11. september ?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband