Orðlaus!

Guð minn almáttugur!

 Er þetta það sem koma skal? Bara vel valdir hópar fá að koma inn í paradísina Íslands þar sem enginn stundar kynlíf utan hjónabands, enginn horfir á erótískar myndir eða klám og enginn blótar?!?!

Við skulum bjóða morðingjum frá Kína í heimsókn en ekki vefsíðuhönnuði og fleirum tengdum löglegri starfsemi sem fer fyrir brjóstið á siðapostulum á Íslandi.

 Ekki skrítið að Styrmir bróðir búi í öðru landi.


mbl.is Hætt við klámráðstefnu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Torfi Gunnarsson

Ég er þér fullkomlega sammála. Þetta er brenglað. Mér er slétt sama um klám og fólkið á bakvið það. Bara hugmyndin um að banna þeim að koma til landsins er gjörsamlega laus við rökhugsun.

Finnur Torfi Gunnarsson, 22.2.2007 kl. 16:21

2 identicon

Ég sem hélt að þjóðin væri svo frjálslynd og nútímaleg, greinilega margfalt íhaldssamari en ég hélt. Oft gerum við grín að öfgatrú/öfgasiðferði sem finnst í suðurríkjum Bna, en erum svo sjálf ekkert skárri. Þetta viðbjóðslega ástand virðist tengjast þeirri forsjárhyggju og bannæði sem hefur farið vaxandi seinustu árin. Það eru tugir þúsunda fasista hér á landi sem sjá ekkert að því að þröngva eigin siðferði yfir aðra,

Svo finnst mér furðulegt að engir pólitíkusar þori að taka afstöðu með ráðstefnunni (eða einfaldlega afstöðu með eðlilegu ferðafrelsi fólks). Það eru örugglega einhverjir þingmenn sem hafa leynilega gaman af klámi, hlutföllin eru allavega slík að það er mjög ólíklegt að þeir séu allir á móti því. En hræðslan við pólitíska rétthugsun er mikil, sérstaklega rétt fyrir kosningar. 

Geiri (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband